Ætlar Rothschild-ættin að sölsa allan heiminn undir sig? Í þessum síðari þætti af tveimur um hina frægu Rothschild-fjölskyldu skoða Eiríkur og Hulda hvernig ættin varð að holdgervingi hins illa og talin stjórna bandaríska seðlabankanum, sitja á toppi Illuminati-píramídans og stýra hinni Nýju heimsskipan. Undanfarin ár hafa sögurnar orðið enn fáránlegri og ættin hefur verið sökuð um að eiga einkaleyfi á Covid-19 og stjórna skógareldum með geimleiserum. Þá er blákaldur veruleikinn sá að þessi gamla evrópska bankaætt á ekki roð í risa á borð við BlackRock og Elon Musk.
Skuggavaldið er í samstarfi við Öskju, Borg brugghús og veiðibúðina Vesturröst.
Ábendingar um efni og hugmyndir um samstarf sendist á
[email protected]