#2 Eftir höfðinu dansa limirnir: Ólafur Árni Sveinsson, taugalæknir við LHS.
Sólin hátt á himni skein þennan síðasta dag aprílmánaðar. Ég sat fyrir utan MS-félagið og baðaði mig í sólargeislunum þegar Ólafur Árni kom gangandi frá Landspítalanum Fossvogi þar sem skrifstofa hans er. Þótt veðrið hafi verið gott fengum við okkur sæti inni í hljóðveri félagsins og spjölluðum um leið hans inn í taugalækningar, MS-sjúkdóminn almennt, nýjustu rannsóknir, meðferðarúrræði, kænsku, D-vítamín og fleira. Njótið vel. Þorsteinn Á. Sürmeli – [email protected]. Endilega sendið mér ábendingar eða tillögur að efnistökum eða viðmælendum www.msfelag.is Sérstakar þakkir: – Samfélagssjóður Landsbankans – Elko – Smári Guðmundsson hjá Smástirni Stef – Fríða Dís Guðmundsdóttir (The Spell af plötunni Lipstick on)