Bókaspjallið | Borgarbókasafnið

Borgarbókasafn Reykjavíkur

Hrekkjavökuganga Borgarbókasafnsins 2020

OCT 30, 202037 MIN

Description

Aðstæður í samfélaginu gera að verkum að ekki er hægt að fagna hrekkjavökunni með hefðbundnum hætti í ár. Borgarbókasafnið býður fjölskyldum því upp á hrekkjavökugaman í formi rafrænnar bókmenntagöngu sem hægt er að fara saman, hvar og hvenær sem er. Sunna Dís Másdóttir les úr skuggalegum, draugalegum, já og stundum hreint út sagt hryllilegum bókum íslenskra barna- og unglingabókahöfunda. Lesið er úr eftirfarandi bókum: Bölvun Múmíunnar eftir Ármann Jakobsson Drauga-Dísa eftir Gunnar Theodór Eggertsson Dúkka eftir Gerði Kristnýju Eitthvað illt á leiðinni er, ritstjóri Markús Már Efraím. Höfundar sögunnar: Ronja Björk Bjarnadóttir og Matthea Júlíusdóttir Skóladraugurinn eftir Ingu Mekkín Beck Vetrarfrí eftir Hildi Knútsdóttur