/https://pbcdn1.podbean.com/imglogo/image-logo/9921980/leikjavarpid-1400.png)
Leikjavarpið - Hlaðvarp Nörd Norðursins
nordnordursins
Leikjavarpið #71 - Zelda 40 ára, BlizzCon og Onimusha: Way of the Sword
SEP 14, 202688 MIN
/https://pbcdn1.podbean.com/imglogo/image-logo/9921980/leikjavarpid-1400.png)
Description
Farið er um víðan völl í nýjasta þætti Leikjavarpsins. Fyrir nokkrum dögum hélt Nintendo ekki eina - heldur tvær leikjakynningar. Í annari þeirra var endurgerðin af The Legend of Zelda: Ocarina of Time kynnt nokkuð ítarlega í tilefni 40 ára afmælis The Legend of Zelda leikjaseríunnar. Nintendo kynntir fleiri leiki, þar á meðal Kirby and the World Beyond og Metroid Ravenous, ásamt varningi eins og amiibos og sérstakri Zelda útgáfu af Switch 2 leikjatölvunni.
Daníel og Sveinn ræða um Onimusha: Way of the Sword sem þeir hafa verið að spila undanfarna daga. Við snertum aðeins á BlizzCon þar sem stór World of Warcraft uppfærsla var kynnt til sögunnar, Diablo V og nýr væntanlegur StarCraft skotleikur. Sveinn prófaði nýja uppfærslu á Xbox sem leyfir Xbox eigendum að fá stafrænt eintak af þeim leikjum sem spilarar eiga í diskaformi, Sveinn segir frá hvernig sú tækni virkar.
Allt þetta og miklu fleira í nýjasta þætti Leikjavarpsins!

