Síðastliðinn laugardagur – 16. maí – kjördagur – var góður dagur fyrir alla hægrimenn á Íslandi. Haldi forystufólk borgaralegra afla rétt á spilunum geta sveitarstjórnarkosningarnar markað tímamót – orðið straumhvörf í íslenskum stjórnmálum. Fyrir ríkisstjórnarflokkana eru úrslitin hins vegar áfall. Í höfuðborginni var samanlagt fylgi Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins aðeins rétt liðlega 32% á móti rúmlega 51% stjórnarandstöðunnar. Flokkur fólksins þurrkaðist út. Sjálfstæðisflokkurinn er langstærsti stjórnmálaflokkurinn í Reykjavík, undir forystu Hildar Björnsdóttur. Miðflokkurinn fékk góða kosningu en Framsóknarflokkurinn tapaði verulegu fylgi en hélt einum borgarfulltrúa.