Skattaspjallið

Samtök skattgreiðenda

Details

Skattaspjallið er hlaðvarp Samtaka skattgreiðenda og mun til að byrja með koma út annan hvern miðvikudag. Stjórnandi hlaðvarpsins er Sigurður Már Jónsson og fjallað verður um skatta út frá sjónarhóli skattgreiðenda og starf samtakanna.

Recent Episodes

SEP 20, 2026
#34 - Hvað borgar þú í skatta?
Það er þekkt spakmæli að ekkert er víst nema skatturinn og dauðinn. Allir borga skatta með einum eða öðrum hætti en veit fólk almennt hvað það borgar í skatta? Nú hefur Viðskiptaráð smíðað gagnvirka skattareiknivél til að varpa ljósi á hversu mikið einstaklingar borga í skatt. Nú geta skattgreiðendur slegið inn eigin forsendur og séð hvað þeir greiða í skatta á mánuði. Ragnar Sigurður Kristjánsson, hagfræðingur Viðskiptaráðs, kom í þáttinn að þessu sinni og benti á að heildarskattbyrði einstaklinga er umtalsvert meiri en ætla mætti út frá þeim sköttum sem koma fram á launaseðlinum einum. Heildarskattbyrðin ræðst af tekjum, neyslumynstri og öðrum aðstæðum hvers og eins. Með reiknivélinni er núna hægt að leggja mat á skattbyrði miðað við eigin forsendur og fá þannig heildstæðari mynd af því hversu stór hluti tekna rennur til hins opinbera í formi skatta. Hugsanlega bregður mörgum í brún þegar endanleg tala birtist!Starfsemi Samtaka skattgreiðenda er rekin fyrir mánaðarlega styrki einstaklinga og fyrirtækja. Ef þú vilt koma í hóp velgjörðarmanna okkar, er hægt að ⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠styrkja samtökin hérna⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠ eða senda okkur póst til að fá nánari kynningu á starfseminni á ⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠[email protected]
21 MIN
AUG 24, 2026
#33 - Loftslagsskattar í ógöngum
Hvernig er haldið á hagsmunum Íslands þegar skattar og gjöld tengd loftslagsmálum eru annars vegar? Fáir hafa kynnt sér þennan málaflokk jafn vel og Albert Jónsson sérfræðingur í alþjóðastjórnmálum. Hann starfaði um árabil sem ráðgjafi Davíðs Oddssonar, þegar hann var forsætisráðherra, í utanríkismálum og síðar sem sendiherra Íslands. Albert segir að Ísland eigi að nýta sér sérstöðu sína í orkumálum og að íslenskur almenningur muni aldrei sætta sig við að greiða fyrirséðan kostnað við aðgerðir í loftslagsmálum, sem hvíli á alþjóðlegum samþykktum. Albert segir að Ísland eigi ekki að sæta sömu ráðstöfunum í loftslagsmálum og önnur ríki í ljósi þess að ríflega 80 prósent af orkunotkun landsins komi frá endurnýjanlegum orkugjöfum. Samsvarandi tala hjá Evrópusambandinu er 25%. Albert segir að Íslendingar eigi ekki að vera feimnir við að grípa í taumana og frábiðja sér alþjóðlegar aðgerðir í loftslagsmálum á meðan aðrar þjóðir séu langt á eftir Íslendingum í notkun endurnýjanlegra orkugjafa. Ísland eigi hins vegar að vera tilbúið að taka þátt þegar aðrar þjóðir fari að nálgast okkur. Starfsemi Samtaka skattgreiðenda er rekin fyrir mánaðarlega styrki einstaklinga og fyrirtækja. Ef þú vilt koma í hóp velgjörðarmanna okkar, er hægt að ⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠styrkja samtökin hérna⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠ eða senda okkur póst til að fá nánari kynningu á starfseminni á ⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠[email protected]
23 MIN