Að hámarka heilsuna | Elvar og Hilmar Leonardssynir | Læknir og sjúkraþjálfari fara sínar eigin leiðir og ögra hefðbundnum hugmyndum

OCT 19, 2026142 MIN

Description

❤️ Samstarfsaðilar Heilsuhlaðvarpsins 🥩 Kjarnafæði – íslenskar kjötvörur og gömlu góðu uppskriftirnar, meðal annars lifrarpylsa og sviðasulta án óþarfa aukaefna - kjarnafaedi.is 🛒 Nettó – frábær tilboð alla daga - mikið úrval af lífrænum vörum og hollustuvörum - netto.is 🥛 Bíóbú – íslenskar lífrænar mjólkurvörur með meira af góðum fitusýrum - búskapur sem setur heilsu lífríkis jarðar í fyrsta sætið - biobu.is 🌱 Greenfit – heilsumælingar, rauðljós, súrefnisklefi, kuldaklefi með meiru - greenfit.is  🎙️ Að hámarka heilsuna – tvíburabræðurnir Elvar og Hilmar Leonardssynir fara sínar eigin leiðir Tvíburabræðurnir Elvar og Hilmar Leonardssynir völdu sér ólíkar leiðir í upphafi. Annar fór í læknisfræði og hinn í sjúkraþjálfun. Fljótlega áttuðu þeir sig þó á því að þeir sáu ekki framtíð sína innan hins hefðbundna heilbrigðiskerfis. Þeir vildu nálgast heilsuna á annan hátt, leggja meiri áherslu á forvarnir og hjálpa fólki að hámarka eigin heilsu í stað þess að einblína á að meðhöndla sjúkdóma. Báðir bættu þeir því við sig námi í heilbrigðisverkfræði og hafa nú stofnað eigið ráðgjafarfyrirtæki á sviði heilsu. Í þessum fróðlega og skemmtilega þætti af Heilsuhlaðvarpi Lukku og Jóhönnu Vilhjálms ræðum við meðal annars: 🧬 Kólesteról  💉 GLP-1  🍬 Insúlín  🥑 Kolvetni, fita og prótein  🏃 Íþróttir, mataræði og hámarksárangur Bræðurnir deila með okkur sínu ferðalagi, þekkingu, áhugaverðum sjónarhornum og hugmyndum um hvernig við getum tekið meiri ábyrgð á eigin heilsu. 📲 Fylgist með þeim á Instagram: @north.health.twins