Heilsuhlaðvarp Lukku & Jóhönnu Vilhjálms

heilsuhladvarp

Details

Heilsa og forvarnir gegn sjúkdómum hafa lengi verið okkur hjartans mál. Þrátt fyrir að líftími fólks hafi lengst undanfarna áratugi, hefur fjöldi heilbrigðra æviára dregist saman. Við erum lengur veik með skertum lífsgæðum og lyfjanotkunin ein sú mesta í heiminum. Getur það talist eðlilegt að flestir séu sjúkir á einhvern hátt? Lítum í kringum okkur, þekkjum við einhverja fjölskyldu þar sem ekki eru einhver veikindi á ferðinni? Getur það verið eðlilegt að með hverju ári aukist fjöldi þeirra sem fær sykursýki, krabbamein, Alzheimers-sjúkdóm, Parkinsonsveiki og sjálfsofnæmissjúkdóma eins og Multiple Schlerosis, gigtarsjúkdóma, Chrons-sjúkdóm, skjaldkirtilssjúkdóma og aðra bólgusjúkdóma? Er eðlilegt að á hverju ári deyi mörg hundruð manns af völdum hjarta- og æðasjúkdóma? Og er eðlilegt að við tökum inn lyf fyrir milljarða til að halda niðri einkennum þessara sjúkdóma en ekki að takast á við orsakirnar og lækna þá? Þessir sjúkdómar sem við nefnum hér hafa verið kallaðir lífsstílssjúkdómar. Hvers vegna? Jú, vegna þess að þeir þekktust varla fyrr en á 20. öld og ef þeir þekktust þá var það í mun minni mæli en á okkar tímum. Þessi sjúkdómar fara nú fremstir í flokki sem orsakir dauðsfalla í heiminum en um 70 prósent dauðsfalla á heimsvísu stafa af þeim. Á Íslandi er hlutfallið um 90%. Hvernig getum við snúið þessari þróun við og stutt líkamann í að viðhalda heilbrigði ævina út? Það er ótrúlega góð tilfinning að vita að maður sjálfur getur haft áhrif á heilsu sína – að maður sé ekki bara eins og korktappi úti á rúmsjó sem hefur ekkert að segja um það hvert ferðinni er heitið. Að maður getur virkilega haft áhrif á það hvort maður veikist eða ekki. Við sækjumst flest eftir aukinni vellíðan, orku, heilbrigðu útliti og síðast en ekki síst að geta verið við góða heilsu með börnum okkar og barnabörnum eins lengi og kostur er. Þess vegna skiptir máli að huga að lífsstílnum. Í þáttunum ætlum við að bjóða upp á fjölbreyttar og fræðandi umræður um allt sem tengist heilsu og heilbrigði, kafa djúpt í heilsutengd málefni og heilbrigðiskerfið og spyrja gagnrýnna spurninga. Við fáum til okkar áhugaverða gesti og sérfræðinga úr heilsugeiranum, auk fólks sem hefur fetað óhefðbundnar leiðir til að takast á við veikindi og sjúkdóma. Áhrifaþættir á heilsu eru svo fjölmargir og af nógu að taka. Markmiðið er að valdefla okkur og fræðast til heilsueflingar! Við erum stoltar af því að kynna heilsuherinn okkar - fyrirtæki sem ætla að koma með okkur í þetta heilsuferðalag - til heilsueflingar!  Bíóbú framleiðir lífrænar mjólkurvörur sem innihalda meira af góðum fitusýrum en hefðbundnar mjólkurvörur - biobu.is Brauð&Co - nota lífrænt korn í ekta súrdeigsbrauð - ekkert ger og engin aukaefni - allt búið til á staðnum - braudogco.is Greenfit - býður upp á heilsumælingar og meðferðir  - styður fólk til betri heilsu - greenfit.is Húsaskjól - umhverfisvæn fasteignasala sem býður upp á meiri upplýsingar í rauntíma en gengur og gerist - husaskjol.is Hreyfing - í forystu heilsueflingar í áratugi og valin besta stöðin sl. fjögur ár samkvæmt Maskínu - hreyfing.is Nettó - í forystu heilsueflingar á smávörumarkaðnum - með bestu heilsudeild landsins - netto.is

Recent Episodes

NOV 16, 2026
Máttur kjötsoðsins – Getur það hjálpað við bólgum og meltingarsjúkdómum? | Melting | Histamín | Omega-3 | Innmatur | Salt | Kolbrún Björnsdóttir grasalæknir
🍲 Getur gamla og góða kjötsoðið verið lykill að betri meltingu og minni bólgum? Í þessum fróðlega þætti fáum við aftur til okkar Kolbrúnu Björnsdóttur grasalækni, eða Kollu, eins og við köllum hana. 🌿 Kolla hefur lengi lagt áherslu á mikilvægi næringar fyrir góða meltingu og segir okkur frá því hvernig hún notar kjötsoð og beinasoð til að hjálpa fólki sem glímir við bólgur og meltingarsjúkdóma, meðal annars Crohns-sjúkdóm. Við ræðum næringarefnin sem leynast í góðu soði, hvernig þau kunna að styðja við meltingarveginn og hvers vegna Kolla telur soðið mikilvægan þátt í sinni nálgun. 🥣 Kolla kennir okkur jafnframt að útbúa gott, næringarríkt kjöt- og beinasoð frá grunni og deilir ýmsum góðum ráðum um hráefni og matreiðslu. Í þættinum ræðum við einnig: 🌱 Histamín – hvað er histamín, í hvaða mat er mikið af því, hvers vegna getur það valdið óþægindum og hvað þarf að hafa í huga við gerð og geymslu kjötsoðs? 🐟 Omega-3 fitusýrur – mikilvægi þeirra fyrir líkamann og hlutverk þeirra í bólguferlum. 🧂 Salt – hvaða salt er best að nota, hver er munurinn á mismunandi tegundum og hvers vegna skiptir það máli? 🥩 ❤️ Innmatur – hvers vegna ættum við að borða meira af lifur, hjörtum og nýrum og hvernig næringarefni í innmat tengjast starfsemi líffæra líkamans 🌿 Gamlar matarhefðir – höfum við gleymt að nýta einhverja næringarríkustu hluta dýrsins? 👩‍🍳 Góðar uppskriftir – Kolla deilir með okkur frábærri uppskrift að heimagerðri lifrarkæfu og kennir okkur hvernig best er að matreiða hjörtu. 💚 Verið með okkur í áhugaverðu og fróðlegu spjalli við Kollu um kjötsoð, beinasoð, meltingarheilsu og hvernig maturinn sem við borðum getur haft áhrif á líðan okkar og heilsu. ❤️ Samstarfsaðilar Heilsuhlaðvarpsins 🥩 Kjarnafæði – íslenskar kjötvörur og gömlu góðu uppskriftirnar, meðal annars lifrarpylsa og sviðasulta án óþarfa aukaefna - kjarnafaedi.is🛒 Nettó – frábær tilboð alla daga - mikið úrval af lífrænum vörum og hollustuvörum - netto.is🥛 Bíóbú – íslenskar lífrænar mjólkurvörur með meira af góðum fitusýrum - búskapur sem setur heilsu lífríkis jarðar í fyrsta sætið - biobu.is🌱 Greenfit – heilsumælingar, rauðljós, súrefnisklefi, kuldaklefi með meiru - greenfit.is
93 MIN
NOV 9, 2026
Tónheilun og tíðni - Getur verið að hljóð hafi meiri áhrif á okkur en við gerum okkur grein fyrir? – Vala Sólrún Gestsdóttir
🎙️ Geta hljóð, tíðni og titringur haft meiri áhrif á líkamlega og andlega heilsu okkar en við gerum okkur grein fyrir? Í þessum þætti fáum við til okkar Völu Sólrúnu Gestsdóttur, víóluleikara, tónskáld og tónheilara, og eigum við hana áhugavert og víðfeðmt samtal um tónheilun, mátt hljóðsins og hvernig mismunandi tíðni og titringur geta haft áhrif á líkama og huga. Vala Sólrún hefur víðtæka menntun á sviði tónlistar og hljóðs. Hún lauk BA- og meistaragráðu frá Listaháskóla Íslands árið 2013, nam hljóðfræði og hljóðupptökur við SAE í London og síðar tónheilun hjá Acutonics í Englandi. Hún hefur jafnframt aflað sér þekkingar á ýmsum sviðum heilsu og vellíðanar, meðal annars í heilun, flotmeðferð, sauna-gusu, andlits- og svæðanuddi, auk þess sem hún er jógakennari. Í dag er hún einnig sendiherra MEINL Sonic Energy, sem framleiðir hljóðfæri fyrir tónheilun. Kynnin af tónheilun urðu Völu mikil tímamót. Hún lýsir því hvernig hún fann nýjan lífskraft, uppgötvaði áður dulda hlið á sjálfri sér og öðlaðist nýjan tilgang í lífinu. Sú reynsla varð henni hvatning til að miðla áfram því sem hún hafði sjálf upplifað og hefur tónheilun og orkuvinna síðan þróast samhliða tónsköpun hennar. Við þekkjum flest hvernig tónlist getur haft djúp áhrif á okkur, kallað fram sterkar tilfinningar, veitt gleði eða fært okkur ró. En geta hljóð og mismunandi tíðnir haft enn víðtækari áhrif? Geta þau haft áhrif á taugakerfið, dregið úr streitu og hjálpað okkur að finna betra jafnvægi? Meðal þess sem við ræðum í þættinum: 🔸 Hvað er tónheilun og á hvaða hugmyndafræði byggist hún? 🔸 Tíðni og titringur – hvernig geta mismunandi hljóð haft áhrif á líkama og huga? 🔸 Áhrif hljóðs á heilann, taugakerfið og streituviðbrögð líkamans. 🔸 Hvernig tónheilun getur stuðlað að djúpri slökun og innri ró. 🔸 Tengsl hljóðs við svefn, tilfinningar og líkamlega spennu. 🔸 Mismunandi tíðnir – við ræðum hvernig tilfinningar hafa mismunandi tíðni og hugmyndafræðina að hver orkustöð líkamans tengist ákveðinni tíðni og nærist á tilteknum hljóðtitringi. 🔸 Áhrif tíðni og titrings á vatn og sand – við ræðum tilraunir þar sem hljóðbylgjur mynda heillandi rúmfræðileg mynstur í sandi og mismunandi bylgjumynstur á yfirborði vatns. Hvað segja þessi fyrirbæri okkur um áhrif hljóðs og titrings á efni? 🔸 Hljóðfærin sem notuð eru við tónheilun og hvað einkennir þau. 🔸 Persónuleg vegferð Völu og hvernig tónheilun breytti sýn hennar á lífið. 🔸 Hvernig við getum nýtt hljóð og tónlist meðvitað til að auka vellíðan í daglegu lífi. Við förum um víðan völl í fróðlegu og einlægu samtali um tónlist, tíðni, titring, lífsorku og þær fjölbreyttu leiðir sem fólk leitar til að efla heilsu sína og vellíðan. Getur verið að hljóð hafi meiri áhrif á okkur en við gerum okkur grein fyrir? ❤️ Samstarfsaðilar Heilsuhlaðvarpsins 🥩 Kjarnafæði – íslenskar kjötvörur og gömlu góðu uppskriftirnar, meðal annars lifrarpylsa og sviðasulta án óþarfa aukaefna - kjarnafaedi.is🛒 Nettó – frábær tilboð alla daga - mikið úrval af lífrænum vörum og hollustuvörum - netto.is🥛 Bíóbú – íslenskar lífrænar mjólkurvörur með meira af góðum fitusýrum - búskapur sem setur heilsu lífríkis jarðar í fyrsta sætið - biobu.is🌱 Greenfit – heilsumælingar, rauðljós, súrefnisklefi, kuldaklefi með meiru - greenfit.is
80 MIN
NOV 2, 2026
Auður Elísabet Jóhannsdóttir hjúkrunarfræðingur um IFS, okkar innri parta, pendúl taugakerfisins, sögu Þráins Þorvaldssonar og ýmislegt fleira
Auður Elísabet starfaði lengi sem hjúkrunarfræðingur, meðal annars á Kvennadeild Landspítalans þar sem hún vann með fólki í erfiðum og djúpum aðstæðum frá vöggu til grafar. Snemma í námi sínu kynntist hún dáleiðslu, sem opnaði augu hennar fyrir því að maðurinn er meira en bara hugur og líkami, andlegi þátturinn skiptir sömuleiðis miklu máli.Í þættinum ræðir Auður Elísabet um heildræna nálgun á heilsu, pendúl taugakerfisins og sjálfsrækt. Hún kynnir IFS-líkanið (Internal Family Systems), sem snýst um að mæta innri pörtum og gömlum áföllum af samkennd og kærleika. Hún deilir einnig með okkur merkilegri sögu Þráins Þorvaldssonar sem sýndi mikið hugrekki eftir krabbameinsgreiningu. Í stað þess að fara beint í skurðaðgerð kaus hann að bíða, minnka streitu og breyta mataræði og vera í virku eftirliti. Auður leggur ríka áherslu á að einstaklingar séu í bílstjórasætinu í eigin heilsuvegferð (t.d. með virku eftirliti), og undirstrikar mikilvægi rótarlækninga og lífsstílsbreytinga frekar en að meðhöndla einungis einkenni. Hún vinnur nú að meistaraverkefni við Háskólann á Akureyri þar sem hún rannsakar reynslu kvenna og svigrúm þeirra til ákvarðanatöku þegar þær greinast með brjóstakrabbamein á byrjunarstigi. ❤️ Samstarfsaðilar Heilsuhlaðvarpsins 🥩 Kjarnafæði – íslenskar kjötvörur og gömlu góðu uppskriftirnar, meðal annars lifrarpylsa og sviðasulta án óþarfa aukaefna - kjarnafaedi.is🛒 Nettó – frábær tilboð alla daga - mikið úrval af lífrænum vörum og hollustuvörum - netto.is🥛 Bíóbú – íslenskar lífrænar mjólkurvörur með meira af góðum fitusýrum - búskapur sem setur heilsu lífríkis jarðar í fyrsta sætið - biobu.is🌱 Greenfit – heilsumælingar, rauðljós, súrefnisklefi, kuldaklefi með meiru - greenfit.is
118 MIN
OCT 26, 2026
Áhrif þunglyndislyfja á fósturþroska - Þórður Þórarinn Þórðarson nýburalæknir. Ný íslensk rannsókn - Áhrif á nýbura | Öndunarerfiðleikar | Upplýst samþykki
Ný íslensk rannsókn, sem birtist í nýjasta tölublaði Læknablaðsins, sýnir að nýburar mæðra sem taka SSRI- eða SNRI-þunglyndislyf á meðgöngu eru meira en tvöfalt líklegri til að þurfa aðstoð eða aðkomu Vökudeildar eftir fæðingu. Um 30% barnanna þurftu slíka aðstoð eða eftirlit, samanborið við um 13% barna í samanburðarhópi. Í þessum þætti ræðum við við Þórð Þórarin Þórðarson, nýburalækni á Landspítalanum, sem hafði umsjón með rannsókninni. Við förum yfir niðurstöðurnar, möguleg áhrif lyfjanna á fóstur og nýbura og mikilvægi þess að verðandi mæður fái greinargóðar upplýsingar um lyfjameðferð á meðgöngu. Í þættinum ræðum við meðal annars: Nýju íslensku rannsóknina – hvað kom í ljós þegar skoðuð voru áhrif SSRI- og SNRI-lyfja á nýbura? Öndunarerfiðleika eftir fæðingu – hvers vegna þurfa fleiri börn mæðra sem taka þessi lyf öndunarstuðning eða aðstoð Vökudeildar? Seinkaða aðlögun nýbura – slappleika, óróleika, aukna vöðvaspennu og erfiðleika við að nærast. Niðurstöðurnar – um 30% barna í lyfjahópnum þurftu aðstoð eða aðkomu Vökudeildar, samanborið við um 13% í samanburðarhópnum. Serótónín og fósturþroska – hvaða hlutverki gegnir serótónín í þroska heilans og hvað vitum við um möguleg langtímaáhrif lyfjanna? Grun um sýkingar – hvers vegna eru þessi börn oftar rannsökuð vegna mögulegra sýkinga? Sektarkennd mæðra – Þórður rifjar upp reynslu sína af mæðrum sem höfðu ekki verið upplýstar um hugsanleg áhrif lyfjanna og ásökuðu sjálfar sig þegar börnin þurftu aðstoð. Upplýst samþykki – fá konur nægar upplýsingar um ávinning og áhættu lyfjameðferðar á meðgöngu? Önnur meðferðarúrræði – er nægilegt aðgengi að sálfræðimeðferð og öðrum úrræðum fyrir konur sem glíma við kvíða og þunglyndi? Mikla notkun þunglyndislyfja á Íslandi – hvers vegna er lyfjanotkun hér á landi svo mikil og þurfum við að endurskoða áherslur heilbrigðiskerfisins? Heilsu móður og barns – hvernig finnum við jafnvægið milli þess að meðhöndla geðræn veikindi móðurinnar og draga úr hugsanlegri áhættu fyrir barnið? Þórður leggur áherslu á að konur hætti ekki lyfjatöku án samráðs við lækni. Markmiðið sé að tryggja betri upplýsingagjöf, einstaklingsmiðaða meðferð og raunverulegt val um meðferðarúrræði. Mikilvægur þáttur fyrir verðandi foreldra, heilbrigðisstarfsfólk og alla sem vilja fræðast um áhrif lyfja á meðgöngu. ❤️ Samstarfsaðilar Heilsuhlaðvarpsins 🥩 Kjarnafæði – íslenskar kjötvörur og gömlu góðu uppskriftirnar, meðal annars lifrarpylsa og sviðasulta án óþarfa aukaefna - kjarnafaedi.is🛒 Nettó – frábær tilboð alla daga - mikið úrval af lífrænum vörum og hollustuvörum - netto.is🥛 Bíóbú – íslenskar lífrænar mjólkurvörur með meira af góðum fitusýrum - búskapur sem setur heilsu lífríkis jarðar í fyrsta sætið - biobu.is🌱 Greenfit – heilsumælingar, rauðljós, súrefnisklefi, kuldaklefi með meiru - greenfit.is
69 MIN
OCT 19, 2026
Að hámarka heilsuna | Elvar og Hilmar Leonardssynir | Læknir og sjúkraþjálfari fara sínar eigin leiðir og ögra hefðbundnum hugmyndum
❤️ Samstarfsaðilar Heilsuhlaðvarpsins 🥩 Kjarnafæði – íslenskar kjötvörur og gömlu góðu uppskriftirnar, meðal annars lifrarpylsa og sviðasulta án óþarfa aukaefna - kjarnafaedi.is🛒 Nettó – frábær tilboð alla daga - mikið úrval af lífrænum vörum og hollustuvörum - netto.is🥛 Bíóbú – íslenskar lífrænar mjólkurvörur með meira af góðum fitusýrum - búskapur sem setur heilsu lífríkis jarðar í fyrsta sætið - biobu.is🌱 Greenfit – heilsumælingar, rauðljós, súrefnisklefi, kuldaklefi með meiru - greenfit.is 🎙️ Að hámarka heilsuna – tvíburabræðurnir Elvar og Hilmar Leonardssynir fara sínar eigin leiðir Tvíburabræðurnir Elvar og Hilmar Leonardssynir völdu sér ólíkar leiðir í upphafi. Annar fór í læknisfræði og hinn í sjúkraþjálfun. Fljótlega áttuðu þeir sig þó á því að þeir sáu ekki framtíð sína innan hins hefðbundna heilbrigðiskerfis. Þeir vildu nálgast heilsuna á annan hátt, leggja meiri áherslu á forvarnir og hjálpa fólki að hámarka eigin heilsu í stað þess að einblína á að meðhöndla sjúkdóma. Báðir bættu þeir því við sig námi í heilbrigðisverkfræði og hafa nú stofnað eigið ráðgjafarfyrirtæki á sviði heilsu. Í þessum fróðlega og skemmtilega þætti af Heilsuhlaðvarpi Lukku og Jóhönnu Vilhjálms ræðum við meðal annars: 🧬 Kólesteról 💉 GLP-1 🍬 Insúlín 🥑 Kolvetni, fita og prótein 🏃 Íþróttir, mataræði og hámarksárangur Bræðurnir deila með okkur sínu ferðalagi, þekkingu, áhugaverðum sjónarhornum og hugmyndum um hvernig við getum tekið meiri ábyrgð á eigin heilsu. 📲 Fylgist með þeim á Instagram: @north.health.twins
142 MIN