Máttur kjötsoðsins – Getur það hjálpað við bólgum og meltingarsjúkdómum? | Melting | Histamín | Omega-3 | Innmatur | Salt | Kolbrún Björnsdóttir grasalæknir

NOV 16, 202693 MIN

Description

🍲 Getur gamla og góða kjötsoðið verið lykill að betri meltingu og minni bólgum? Í þessum fróðlega þætti fáum við aftur til okkar Kolbrúnu Björnsdóttur grasalækni, eða Kollu, eins og við köllum hana. 🌿 Kolla hefur lengi lagt áherslu á mikilvægi næringar fyrir góða meltingu og segir okkur frá því hvernig hún notar kjötsoð og beinasoð til að hjálpa fólki sem glímir við bólgur og meltingarsjúkdóma, meðal annars Crohns-sjúkdóm. Við ræðum næringarefnin sem leynast í góðu soði, hvernig þau kunna að styðja við meltingarveginn og hvers vegna Kolla telur soðið mikilvægan þátt í sinni nálgun. 🥣 Kolla kennir okkur jafnframt að útbúa gott, næringarríkt kjöt- og beinasoð frá grunni og deilir ýmsum góðum ráðum um hráefni og matreiðslu. Í þættinum ræðum við einnig: 🌱 Histamín – hvað er histamín, í hvaða mat er mikið af því, hvers vegna getur það valdið óþægindum og hvað þarf að hafa í huga við gerð og geymslu kjötsoðs? 🐟 Omega-3 fitusýrur – mikilvægi þeirra fyrir líkamann og hlutverk þeirra í bólguferlum. 🧂 Salt – hvaða salt er best að nota, hver er munurinn á mismunandi tegundum og hvers vegna skiptir það máli? 🥩 ❤️ Innmatur – hvers vegna ættum við að borða meira af lifur, hjörtum og nýrum og hvernig næringarefni í innmat tengjast starfsemi líffæra líkamans 🌿 Gamlar matarhefðir – höfum við gleymt að nýta einhverja næringarríkustu hluta dýrsins? 👩‍🍳 Góðar uppskriftir – Kolla deilir með okkur frábærri uppskrift að heimagerðri lifrarkæfu og kennir okkur hvernig best er að matreiða hjörtu. 💚 Verið með okkur í áhugaverðu og fróðlegu spjalli við Kollu um kjötsoð, beinasoð, meltingarheilsu og hvernig maturinn sem við borðum getur haft áhrif á líðan okkar og heilsu. ❤️ Samstarfsaðilar Heilsuhlaðvarpsins 🥩 Kjarnafæði – íslenskar kjötvörur og gömlu góðu uppskriftirnar, meðal annars lifrarpylsa og sviðasulta án óþarfa aukaefna - kjarnafaedi.is 🛒 Nettó – frábær tilboð alla daga - mikið úrval af lífrænum vörum og hollustuvörum - netto.is 🥛 Bíóbú – íslenskar lífrænar mjólkurvörur með meira af góðum fitusýrum - búskapur sem setur heilsu lífríkis jarðar í fyrsta sætið - biobu.is 🌱 Greenfit – heilsumælingar, rauðljós, súrefnisklefi, kuldaklefi með meiru - greenfit.is