Alltaf til hægri - Óli Björn
Alltaf til hægri - Óli Björn

Alltaf til hægri - Óli Björn

olibjorn

Overview
Episodes

Details

Stjórnmál, listir og menning, umhverfismál, efnahagsmál, viðskipti og hugmyndafræði. Óli Björn Kárason er alltaf til hægri.

Recent Episodes

„Atvinnustefnuráð“ er lausnarorðið
APR 24, 2026
„Atvinnustefnuráð“ er lausnarorðið
Ríkisstjórn Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins hefur samþykkt sérstaka atvinnustefnu fyrir landið sem er sögð sú fyrsta hér á landi. Markið er sett hátt og stóru orðin eru ekki spöruð frekar en fyrri daginn til að lýsa stefnunni. Atvinnustefna Íslands er sögð vera vaxtarplan til 10 ára sem lýsi því hvernig stjórnvöld vinna með atvinnulífinu og samfélaginu að aukinni verðmætasköpun. Markviss atvinnustefna geri ríkisstjórninni kleift að samhæfa aðgerðir stjórnvalda gagnvart atvinnulífi og veiti fyrirsjáanleika til fjárfestinga. Öll vinnan verður undir forystu forsætisráðuneytis auk þess sem „sjálfstætt atvinnustefnuráð fimm sérfræðinga“ hefur verið skipað verið skipað. Ráðið á að veita ríkisstjórninni ráðgjöf um mótun og innleiðingu atvinnustefnunnar og fylgjast með framvindu markmiða og mælikvarða hennar. Það er freistandi fyrir stjórnvöld að sýna frumkvæði með því að setja fram stórar áætlanir um framtíð atvinnulífsins. Slíkar áætlanir gefa til kynna skilning, forystu og skýra framtíðarsýn. En góður ásetningur tryggir ekki að árangur náist. Enginn stjórnmálamaður, hvað þá embættismaður, hefur hæfileika, nauðsynlega þekkingu eða yfirsýn til að skynja tækifæri framtíðarinnar og enginn einstaklingur getur með réttu séð fyrir hvernig einstaklingar bregðast við aðstæðum. Hugmyndin að baki opinberri atvinnustefnu á rætur í sama jarðvegi og hugsjónir stjórnlyndra manna sem telja að hið opinbera með sérfræðingum sínum sé best til þess fallið að skipuleggja framtíðina. Á svipaðri hugmyndafræði byggðu Kommúnistaflokkur Sovétríkjanna og Stalín þegar fimm ára áætlanir voru mótaðar.
play-circle icon
20 MIN