#601 - Gagnaver, gervigreind og fjárfestingar
NÝ SERÍA - Ræðum það... rúllar af stað af ný. Hringborð atvinnulífsins: Við hringborðið í dag eru Tinna Traustadóttir, framkvæmdastjóri sölu og þjónustu hjá Landsvirkjun, Magnús Bjarnason ráðgjafi og eigandi MAR advisors. Við fengum þau til að ræða sögu íslenska gagnaversiðnaðarins og hvaða frekari tækifæri eru fyrir Íslands á því sviði. Viðtalið: Sylvía Kristín Ólafsdóttir, forstjóri Nova, er í viðtalinu og ræðir nýja strategíu og fjárfestingar Nova. Hitamælirinn: Í hitamæli viðskiptalífsins skyggndumst við inn í umræðuna á bakvið fréttafyrirsagnir vikunnar með Þorsteini Friðriki Halldórssyni, ritstjóra Hluthafans. Ræðum það... verður eftirleiðis vikulegt videó-hlaðvarp um viðskipti, efnahagsmál og opinbera stefnumörkun. Vandað og uppbyggilegt en líka snarpt og með puttann á púlsi umræðunnar. Við munum grípa umræðu sem tengist nýlegum fréttafyrirsögnum í viðskiptalífinu. Gestir verða aðallega forystufólk í atvinnulífinu en líka glöggt fólk með góða innsýn í umræðuefnin sem er ekki tíðir gestir í hlaðvörpum. ---- Ræðum það... er hlaðvarp Góðra samskipta og hefur verið gefið út frá árinu 2020. Stjórnandi er Andrés Jónsson