/https://d3t3ozftmdmh3i.cloudfront.net/staging/podcast_uploaded_nologo/44079193/44079193-1752676638559-e46f02a248e4e.jpg)
Ræðum það...
Andrés Jónsson
#603 - Hallalaus fjárlög eða hvað?
SEP 14, 202680 MIN
/https://d3t3ozftmdmh3i.cloudfront.net/staging/podcast_uploaded_nologo/44079193/44079193-1752676638559-e46f02a248e4e.jpg)
Description
Hallalaus fjárlög eða hvað?
Hringborð atvinnulífsins:
Við hringborðið í dag eru Ragna Sigurðardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar og varaformaður efnahags- og viðskiptanefndar og Árni Helgason þingmaður Sjálfstæðisflokksins. Við fengum þau til að ræða hvers konar signal ríkisstjórnin sendir með hallalausu fjárlagafrumvarpi og hversu miklar líkur séu í raun á hallalausum ríkisrekstri á næsta ári.
Viðtalið:
Margréti Ormslev Ásgeirsdóttir, framkvæmdastjóri Ligo, er í viðtalinu og ræðir nýtingu gervigreindar fyrir innviði eins og fasteignir og frárennslislagnir.
Hitamælirinn:
Í hitamæli viðskiptalífsins fórum við yfir umræðu um samsetningu eignarhalds fyrirtækja í kauphöll Íslands með Herði Ægissyni, ritstjóra Innherja. Við ræðum hvernig sambúðin milli stórra stofnanafjárfesta og einkafjárfesta þurfi að þróast til að stuðla að meiri veltu og aukinni þátttöku nýrra fjárfesta í kauphöllinni. Eitthvað sem er reyndar líka stórt hagsmunamál almennings.
----
Ræðum það... er hlaðvarp Góðra samskipta og hefur verið gefið út frá árinu 2020.
Ræðum það... fjallar vikulega um viðskipti, efnahagsmál og opinbera stefnumörkun. Þetta er snarpt videó-hlaðvarp með puttann á púlsi umræðunnar og nýlegum fréttafyrirsögnum í viðskiptalífinu. Gestir eru forystufólk í atvinnulífinu en líka glöggt fólk með góða innsýn í umræðuefnin sem er ekki tíðir gestir í hlaðvörpum.
Stjórnandi er Andrés Jónsson

