Ræðum það...

Andrés Jónsson

#510 Er Ísland opið fjárfestum?

APR 15, 202630 MIN

Description

Er Ísland opið fjárfestum? Í þætti vikunnar ræða Margrét Ormlev Ásgeirsdóttir, rekstrarráðgjafi hjá Ormslev Advisory og Friðjón Þórðarson, framkvæmdastjóri Qair Ísland, um atvinnustefnuna sem oddvitar ríkisstjórnarflokkanna kynntu á blaðamannafundi á föstudaginn. Bæði hafa þau um árabil haft milligöngu um aðkomu erlendra fjárfesta að orkuuppbyggingu og grænum orkuverkefnum hér á landi og þekkja hversu langt og flókið ferli það getur verið. Tilkynningarskyldan: Þau þekktust ekki fyrir þennan þátt. Við erum líka á https://raedumthad.substack.com - fáið tilkynningar um nýja þætti og meira til. — Ræðum það… er spjallþáttur um atvinnulífið. Þátturinn hefur komið út reglulega frá árinu 2020. Stjórnandi er Andrés Jónsson* (*)Efnistök eru alfarið óháð verkefnum Góðra samskipta á hverjum tíma. Við val á gestum forðumst við alla hagsmunaárekstra.