Árleg fjármálafræðsla hefur fest sig í sessi innan samþættingar í 7. – 10. bekk Stapaskóla. Samfélagsfræðikennarinn okkar hún Ninna Stefánsdóttir heldur utan um verkefnið innan Stapamix hópsins og er viðmælandi minn í dag. Til viðbótar við fjölbreytt fjármálaþema hefur Ninna einnig verið með valgreinina Fjármálalæsi tvisvar sinnum á skólaári í þessi þrjú ár síðan kennsla hófst á unglingastigi.
Í þessum þætti ræðir Heiða við Ninnu um fjármálafræðslu, fjármálalæsi og hvaðan hennar áhugi á fjármálum kemur.